Björk Ólafsdóttir
Matsfræðingur
    Sigríður Sigurðardottir
Matsfræðingur

Björk lauk meistaraprófi í uppeldis- og menntunarfræði með áherslu á mat frá Háskóla Íslands í febrúar 2006. Meistaraverkefnið hennar var mat á Meðferðarheimilinu í Krýsuvík.

Björk er formaður Íslenska matsfræðifélagsins og sat í undirbúningshópi að stofnun þess félags.

Björk er leikskólakennari og með B.A. próf í þýsku. Hún hefur starfað sem deildarstjóri á leikskólanum Skógarborg og við ferðaþjónustu.
Björk er stundakennari í eigindlegum rannsóknaraðferðum við félagsvísindadeild Háskóla Íslands. Hún hefur reynslu af mati á mennta- og heilbrigðissviði.

   Sigríður lauk meistaraprófi í uppeldis- og menntunarfræði með áherslu á mat frá Háskóla Íslands í febrúar 2008. Meistararitgerðin hennar fjallaði um sjálfsmat Vatnsendaskóla í Kópavogi.
Sigríður er varamaður í stjórn Íslenska
matsfræðifélagsins og var í undirbúningshópi
að stofnun þess félags.
Sigríður er með B.Ed. próf frá Kennaraháskóla Íslands. Hún hefur kennt við Lindaskóla í Kópavogi og Ármúlaskóla og verið deildarstjóri í Vatnsendaskóla.
Sigríður er stundakennari í eigindlegum rannsóknaraðferðum við
félagsvísindadeild Háskóla Íslands. Hún hefur reynslu af mati á mennta- og heilbrigðissviði.
   
 
© 2007 Ísmat - www.ismat.is - ismat@ismat.is